Efst á baugi

Stefnumót um framleiðslu eldsneytis

1.12.2008

bensin
Eldsneytisframleiðsla á Íslandi
Á 10. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun verður fjallað um möguleika á framleiðslu vistvæns eldsneytis hér á landi.

Möguleikar á framleiðslu vistvæns eldsneytis hér á landi verða til umfjöllunar á 10. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun. Á fundinum mun Ágústa Loftsdóttir, verkefnisstjóri Vettvangs um vistvænt eldsneyti hjá Orkustofnun, veita yfirlit yfir þá möguleika sem eru fyrir hendi. K. C. Tran, forstjóri Carbon Recycling International, mun fjalla um framleiðslu fyrirtækisins á metanóli út koltvísýringsútblæstri frá jarðvarmavirkjunum.

Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 3. desember kl. 12:00 til 13:30.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica