Beint í leiðarkerfi vefsins.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að hefja endurskoðun á tilskipun um mat á umhverfisáhrifum og veitir öllum tækifæri á að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum. Íslensk löggjöf á þessu sviði er byggð á tilskipuninni.
Lesa meira
Norðurlandaráð veitti nýverið þremur bönkum náttúru- og umhverfisverðlaun 2010. Merkur Andelskasse, Ekobanken og Cultura Bank fengu verðlaunin fyrir græna og sjálfbæra stefnumótun. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í haust.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti fuglafriðlandið í Flóa fyrir skömmu. Fuglaverndarfélag Íslands og sveitarfélagið Árborg vinna að áætlun um endurheimt og verndun votlendisins á svæðinu.
Lesa meira
Landmælingar Íslands urðu í fimmta sæti í vali á stofnun ársins í flokki minni stofnana og einnig ef miðað er við heildarfjölda og hljóta því sæmdarheitið fyrirmyndarstofnun 2010.
Lesa meira
Umhverfisráðuneytið efnir til ráðstefnu um endurheimt votlendis þann 12. maí í samstarfi við fleiri aðila. Ráðstefnan er haldin í tilefni alþjóðlegs árs líffræðilegrar fjölbreytni og í ljósi vaxandi umræðu um hlutverk votlendis í loftslagsbreytinum.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði fyrir skömmu heimasíðuna fishernet.is. Síðan er unnin af Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og hún hefur að geyma margvíslegan fróðleik um strand- og fiskveiðimenningu Íslands.
Lesa meiraNorrænu fjármögnunarsjóðirnir NEFCO og NOPEF efna til kynningar á starfsemi sjóðanna og möguleikum íslenskra fyrirtækja til að sækja um stuðning á Hótel Nordica Reykjavík fimmtudaginn 15. apríl kl. 8:00-10:00.
Lesa meira
Farfuglaheimilunum í Laugardal og við Vesturgötu var veitt vottun norræna umhverfismerkisins Svansins í gær. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti viðurkenninguna og sagði í ávarpi að farfuglaheimilin hefðu lengi verið í fararbroddi í umhverfismálum hér á landi og vottunin væri staðfesting þess.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti starfsfólk Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í dag til að fræðast um hálendisvakt félagsins. Meðal þess sem hálendisvaktin leggur áherslu á er að vakta akstur utan vega og fræða erlenda ferðamenn um bann við slíkum akstri.
Lesa meira
Umhverfisstofnun Evrópu hefur gefið út skýrsluna Umhverfisteikn 2010. Skýrslan fjallar að þessu sinni um líffræðilega fjölbreytni og loftslagsbreytingar. Í henni eru m.a. sagðar sögur sex einstaklinga sem hafa orðið fyrir áhrifum af breytingum í náttúrunni.
Lesa meira
Norræna umhverfismerkið Svanurinn verður 20 ára í ár og tvöþúsundasta Svansleyfið var veitt á afmælisárinu. Hér á landi eru 5 Svansleyfi í gildi og búist er við að fleiri bætast í hópinn fljótlega en Umhverfisstofnun hafa borist 14 umsóknir um Svansvottun.
Lesa meira
Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur óska eftir tilnefningum til Varðliða umhverfisins 2010, verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er m.a. að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd og vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál.
Lesa meira
Skipulagsstofnun hefur opnað svokallaða Skipulagsvefsjá sem er rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana sem varðveittar eru hjá stofnuninni. Með tímanum verður hægt að nálgast þar allt deili- og aðalskipulag sem samþykkt og staðfest hefur verið samkvæmt skipulags- og byggingarlögum.
Lesa meira
Föstudaginn 5. febrúar verður málþingið Kyn og loftslagsbreytingar haldið í Háskóla Íslands. Umhverfisráðherra flytur ávarp við upphaf málþingsins.
Lesa meira
Nýlega kom út ársskýrsla OSPAR-samningsins sem fjallar um verndun Norðaustur-Atlantshafsins. Í skýrslunni er farið yfir meginviðfangsefni samningsins og þann árangur sem hefur náðst að undanförnu.
Lesa meira