Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fjallað er um erindi Svandísar Svavarsdóttur um nauðsyn þess að bæði kyn komi að úrbótum í loftslagsmálum á heimasíðu Norrænu rannsóknarstofnunarinnar í kvenna- og kynjafræðum.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kynnti markmið Íslands um 30% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020, sem nást mun í samvinnu við önnur ríki. Sagði hún lagalega bindandi alþjóðlegt samkomulag með þátttöku allra nauðsynlegt. Þá benti hún á að Ísland styður þróunarríki við landgræðslu og nýtingu jarðhita.
Lesa meira
„Nú þurfa þjóðir heims að taka höndum saman í loftslagsmálum - ekki einungis til að vernda andrúmsloftið heldur og lífríki hafsins,“ er meðal þess sem segir í grein Svandísar Svavarsdóttur um súrnun hafsins, sem hún segir vera „dulinn vanda“ innan loftslagsvandans.
Lesa meira
Stjórnvöld standa frammi fyrir stærsta einstaka verkefni nokkurrar kynslóðar og nú þarf kjark og samstöðu til að brjóta blað, segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í aðdraganda loftslagsráðetefnunnar í Kaupmannahöfn. Drög að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem nýverið voru lögð fram, eru hluti þess sem Íslendingar munu gera til að geta staðið við skuldbindingar sínar og til að leggja sitt af mörkum svo jarðarbúar geti snúið vörn í sókn.
Lesa meiraUmhverfisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á stofnum villtra dýra. Skriflegar umsóknir skulu berast ráðuneytinu fyrir 30. desember 2009.
Lesa meira
Norðurlandaráð auglýsir eftir tilnefningum til náttúru- og umhverfisverðlauna ráðsins 2010. Þá verða verðlaunin veitt norrænu fyrirtæki, stofnun, fjölmiðli eða einstaklingi, sem hefur haft áhrif á fjármálamarkaðinn í því augnamiði að samþætta sjálfbærni í fjármálaumsýslu.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað skólaráð Brunamálaskólans til næstu fjögurra ára. Hlutverk skólaráðsins er meðal annars að vera Brunamálastofnun til ráðgjafar um fagleg og rekstrarleg málefni skólans Umhverfisráðherra skipaði Kristínu Jónsdóttur formann ráðsins.
Lesa meira
Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál. Breytendur krefjast þess að stjórnvöld skilgreini stöðu flóttamanna undan hlýnun jarðar og að Íslendingar taki sér stöðu meðal leiðandi þjóða í loftslagsmálum í Kaupmannahöfn í desember 2009.
Lesa meira
OSPAR samningurinn sem fjallar um verndun Norðaustur-Atlantshafsins vinnur að skýrslu um ástand hafsins sem koma mun út árið 2010. Umhverfisráðuneytið vill vekja athygli á að drög að skýrslunni liggja nú fyrir á heimasíðu samningsins og þar er hægt að gera athugasemdir við skýrsluna.
Lesa meira
Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur buðu nemendum í Hjólaríi Snælandsskóla í hjólreiðaferð í liðinni viku. Nemendurnir voru útnefndir Varðliðar umhverfisins á Degi umhverfisins í ár og var ferðin viðurkenning fyrir þann árangur.
Lesa meira
Sænska verkefnið I ur og skur hlaut náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Dómnefnd verðlaunanna ákvað þetta á fundi, sem haldinn var hér á landi í gær. Í rökstuðningi dómnefndar segir að aðferðir I Ur og skur hvetji til til útivistar og séu frábært dæmi um verkefni sem stuðlar að velferð barna og auki skilning þeirra á náttúrunni.
Lesa meira
Rúmlega 400 hafa skráð sig til þátttöku á Umhverfisþingi sem hefst á föstudag og verður þingið því það fjölmennasta hingað til. Sjálfbær þróun verður meginefni þingsins að þessu sinni. Lögð verður áhersla á virka þátttöku þinggesta og því verður efnt til umræðna í heimskaffistíl.
Lesa meira
Konur verða að koma að ákvörðunum og skipulagi í loftslagsmálum til jafns á við karla, sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í ávarpi í Háskóla Íslands í gær sem hún flutti á táknmáli. Þetta var í fyrsta sinn sem íslenskur ráðherra flytur ávarp á táknmáli svo vitað sé.
Lesa meira
Dagana 17.-19. september 2009 verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu í Reykjavík um þátt skóga og skógræktar í því að efla útivist og lýðheilsu almennings í þéttbýli. Ráðstefnan er haldin er í tengslum við formennskuár Íslands í norrænu ráðherranefndinn og Skógrækt ríkisins er meðal skipuleggjenda.
Lesa meira
Nýr vefur um vistvæn innkaup hefur verið opnaður á slóðinni vinn.is. Á vefnum eru hagnýtar upplýsingar sem gagnast kaupendum og útboðsaðilum, um það hvernig best er að kaupa inn og bjóða út á vistvænan hátt. Þar er einnig að finna ráðleggingar til seljenda.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti nemendum og starfsfólki leikskólans Fururgrundar í Kópavogi Grænfánann í liðinni viku. Þetta var fyrsti Grænfáninn sem Svandís afhendir frá því að hún tók við starfi umhverfisráðherra.
Lesa meira
,,Í Kýótó var erindi Íslands einkum að biðja um undanþágur frá reglum bókunarinnar. Í Kaupmannahöfn mun Ísland ganga til liðs við þau ríki sem ætla sér að vera í framvarðasveit í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Lesa meira
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) og norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) kynntu starfsemi sína á morgunverðarfundi á Grand Hótel í morgun. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins, tók nýverið við formennsku í NEFCO.
Lesa meira
Loftslagsbreytingar á Norðurslóðum eru enn hraðari en talið hefur verið til þessa. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnu sem haldin var í tengslum við ráðherrafund Norðurskautsráðsins í Tromsö í Noregi fyrir skömmu.
Lesa meira
Nýlega úthlutaði Kvískerjasjóður styrkjum ársins 2009. Tólf umsóknir bárust og var samanlögð upphæð umsókna á sjöttu milljón króna. Að þessu sinni er úthlutað til sjö verkefna.
Lesa meira
Umhverfisráðherra þáði heimboð Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í dag. Ráðherrann ræddi m.a. við forsvarsmenn Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs.
Lesa meira
Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um vistvæna nýsköpun og nýjar áherslur í atvinnuuppbyggingu.
Lesa meira
Verkefnisstjórn rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma hefur opnað heimasíðu. Vefsíðan er sniðin að þeim sem vilja kynna sér rammaáætlun, tilurð hennar, markmið, verklag og framgang.
Lesa meira
Stórt skref var stigið í átt að alþjóðlegum samningi um kvikasilfur á árlegum ráðherrafundi Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var í Nairobi í Kenía í liðinni viku.
Lesa meira