Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni hefur stofnunin meðal annars opnað vefútgáfu af farandsýningunni Heimsakutslöndin unaðslegu.
Lesa meira
Náttúruvefsjáin hefur verið opnuð á netinu. Vefsjáin birtir fjölbreytt gögn um náttúrufar og auðlindir Íslands og á m.a. að bæta möguleika almennings og skólafólks á að skoða náttúrufarsupplýsingar og fræðast um auðlindir landsins á lifandi hátt.
Lesa meira
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að gestastofa garðsins á Skriðuklaustri verði byggð samkvæmt vistvænum stöðlum. Talið er að gestastofan verði fyrsta húsið hér á landi sem fengi slíka vottun samkvæmt viðurkenndum stöðlum.
Lesa meira
Í tilefni endurvinnsluviku heimsóttu Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra Menntaskólann við Sund í gær og kynntu sér hvernig skólinn tekur virkan þátt í verkefninu.
Lesa meira
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnaði nýlega Náttúrukort Framtíðarlandsins við athöfn í Norræna húsinu. Náttúrukortið er upplýsingaveita um þau svæði á Íslandi sem hafa verið nýtt og fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu.
Lesa meira
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra setti nýverið norrænan sumarskóla Landmælinga Íslands fyrir landmælingamenn. Skólinn er haldinn í samvinnu við norræna landmælingaráðið og landmælingar og loftslagsbreytingar er meginþemað að þessu sinni.
Lesa meira
Um 90% landsmanna telja Veðurstofu Íslands veita góða eða mjög góða þjónustu og um 75% bera mikið traust til stofnunarinnar. Þetta er niðurstaða könnunar sem Capacent Gallup gerði í maí á afstöðu þjóðarinnar til átján opinberra stofnana sem eiga í miklum samskiptum við almenning.
Lesa meira
Samkomulag hefur náðst um aukna samvinnu milli Samnings um líffræðilega fjölbreytni og Bernarsamningsins. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar og forseti Bernarsamningsins tók þátt í gerð samkomulagsins.
Lesa meira
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti eftirfarandi ávarp við setningu fuglaráðstefnu sem haldin var af Fuglavernd í samstarfi við Líffræðistofnun Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands í Öskju 19. apríl 2008.
Lesa meira
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti eftirfarandi ávarp á fræðsludegi um náttúrufar Skagafjarðar sem Náttúrustofa Norðurlands vestra stóð fyrir 12. apríl 2008.
Lesa meiraÞórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti eftirfarandi ávarp á málþingi Skipulagsstofnunar um landsskipulag sem haldið var í Salnum í Kópavogi 10. apríl 2008.
Lesa meira
Þórunn Sveinbjarnardóttir flutti eftirfarandi ávarp á fundi Matvæla og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um kynjamál og loftslagsbreytingar sem fram fór í Róm 10. mars 2008. Fundurinn var haldinn í tengslum við alþjóðlega kvennadaginn 8. mars 2008. Ávarpið er flutt á ensku.
Lesa meira
Veðurstofa Íslands fékk verðlaun fyrir besta vef í almannaþjónustu þegar Íslensku vefverðlaunin 2007 voru veitt 1. febrúar síðastliðinn. Í umsögn dómnefndar sagði m.a. að á vefnum væri allt til sóma, viðmótið vel hannað, nytsamlegt og aðgengilegt.
Lesa meira
Alþjóðlegi votlendisdagurinn er í dag, 2. febrúar. Ramsarsamningurinn um votlendi var undirritaður þennan dag árið 1971 í írönsku borginni Ramsar. Nú eru 158 ríki aðilar að samningnum og 1.717 votlendissvæði eruð friðuð samkvæmt honum. Ísland gerðist aðili að samningnum árið 1977 og nú eru þrjú Ramsarsvæði hér á landi; Þjórsárver, Grunnafjörður og Mývatn og Laxá.
Lesa meira
Tíunda landsráðstefna um Staðardagskrá 21 verður haldin að Hótel Örk í Hveragerði dagana 8. og 9. febrúar næstkomandi. Meginþema ráðstefnunnar verða tengsl umhverfis og heilsu, en einnig er ætlunin að leita svara við spurningunni ,,Hvernig getur sjálfbær þróun skapað ný störf. Lesa meira