Efst á baugi

Veðurstofa Íslands

19.12.2007 : Starfsemi Vatnamælinga og Veðurstofu Íslands sameinast í einni stofnun

Ákveðið hefur verið að sameina starfsemi Vatnamælinga og Veðurstofu Íslands í nýrri stofnun sem gert er ráð fyrir að taki til starfa eigi síðar en 1. janúar 2009. Fyrirhuguð stofnun gengur undir vinnuheitinu Vatna- og Veðurstofa Íslands. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra á málstofu um niðurstöður loftslagsverkefnis á 60 ára afmæli Vatnamælinga í dag. Lesa meira
 
Bílar

18.12.2007 : Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum hefur aukist mikið

Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum jókst um 60% frá 1990 til 2006 að mati Vegagerðarinnar. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu fjármálaráðuneytisins. Þar segir ennfremur að í árslok 1990 hafi 134.000 ökutæki verið skrásett hér á landi en þau séu nú 292.000. Fjöldi ökutækja hefur því meira en tvöfaldast á þessu tímabili. Lesa meira
 
Umhverfisstofnun

17.12.2007 : Starf forstjóra Umhverfisstofnunar er laust til umsóknar

Umhverfisráðuneytið auglýsir starf forstjóra Umhverfisstofnunar laust til umsóknar. Starfssvið forstjórans er stjórnun og stefnumótun stofnunarinnar, ábyrgð á rekstri, áætlanagerð, starfsmannamál og samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar næstkomandi. Lesa meira
 
Samanburður Germanwatch 2008

7.12.2007 : Loftslagsstefna Íslands í þriðja sæti

Ísland er í þriðja sæti á lista þýsku félagasamtakanna Germanwatch þar sem borin er saman frammistaða ríkja í loftslagsmálum. Skýrslan var kynnt á þingi aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem fram fer á Bali í Indónesíu. Ísland var í fjórtánda sæti á listanum fyrir ári síðan en hefur nú færst upp í þriðja sæti listans á eftir Svíum og Þjóðverjum. Lesa meira
 

5.12.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á opnum fundi Framtíðarlandsins um Árósasamninginn

Þórunn Sveinbjarnardóttir flutti eftirfarandi ávarp um stöðu lýðræðis-, skipulags-, og umhverfismála með hliðsjón af Árósasamningnum á opnum fundi á vegum Framríðarlandsins um Árósasamninginn 5. desember 2007. Lesa meira
 

5.12.2007 : Erlendar tegundir, bölvun eða blessun?

Fimmta Stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmunar fróða um sjálfbæra þróun fer fram á föstudag og fjallar um áhættuna sem fylgir því þegar erlendar plöntur eða dýr er flutt inn til landsins. Snorri Baldursson, forstöðumaður upplýsingadeildar Náttúrufræðistofnunar Íslands, og Þröstur Eysteinsson, fagmálastjóri hjá Skógrækt ríkisins, munu flytja erindi.

Lesa meira
 
Frá setningu 13. Loftslagsþings aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar á Balí í Indónesíu í morgun.

3.12.2007 : Loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna hófst á Balí í dag

Þrettánda Loftslagsþing aðildarríkja Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hófst á Balí í Indónesíu í dag og stendur til 14. desember. Fulltrúar 180 ríkja sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðastofnana, félagasamtaka og fjölmiðla. Vonast er til að í Balí verði lagður grunnur að samkomulagi um hvað taki við þegar Kyoto-bókunin um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda fellur úr gildi í lok árs 2012. Lesa meira
 
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands.

29.11.2007 : Forstjóri Náttúrufræðistofnunar kosinn forseti Bernarsamningsins

Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, var í dag kosinn forseti Bernarsamningsins á aðildarríkjafundi samningsins í Strasborg í Frakklandi. Bernarsamningurinn fjallar um verndun villtra plantna, dýra og lífsvæða í Evrópu og er einn af grundvallar samningum Evrópu á sviði umhverfisverndar. Lesa meira
 

27.11.2007 : Sveitarfélög komi í auknum mæli að rekstri náttúrustofa

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segist undrast hversu erfiðlega gangi að fá fleiri sveitarfélög að rekstri náttúrustofa. Þetta kom fram í ræðu hennar á ársfundi Samtaka náttúrustofa í Náttúrugripasafni Bolungarvíkur fyrir skömmu. Umhverfisráðherra sagði að ef fleiri sveitarfélög kæmu að rekstrinum ætti að skapast grundvöllur fyrir frekari fjölgun starfa og styrkingu náttúrustofanna.

Lesa meira
 
Jónas Hallgrímsson

16.11.2007 : Náttúrufræðistofnun Íslands verður við Jónasartorg

Ákveðið hefur verið að torgið sem fyrirhugað hús Náttúrufræðistofnunar Íslands mun rísa við skuli heita Jónasartorg. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkt tillögu þess efnis í dag, á 200 ára fæðingarafmæli þjóðskáldsins og náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar. Jónas hefur stundum verið kallaður fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn.

Lesa meira
 
Við undirritun samnings Stykkishólmsbæjar og Íslenska gámafélagsins.

16.11.2007 : Hólmarar hugsa áður en þeir henda

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra var viðstödd undirritun samnings Stykkishólmsbæjar og Íslenska gámafélagsins um flokkun sorps og moltugerð í gær. Samkvæmt samningnum fær hvert heimili í bænum þrjár tunnur til ráðstöfunar; hefðbundna ruslatunnu, tunnu fyrir endurvinnanlegan úrgang og tunnu undir lífrænan úrgang. Lesa meira
 
Heimsókn umhverfisráðherra í SORPU.

15.11.2007 : Umhverfisráðherra heimsækir SORPU

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra heimsótti SORPU fyrir skömmu og kynnt sér starfsemi hennar. Hún skoðaði meðal annars móttökustöðina í Gufunesi og á urðunarstað í Álfsnesi þar sem metanframleiðsla fer fram og ræddi um verkefni sveitarfélaga í sorphirðumálum og þær skyldur sem sveitarfélög þurfa að uppfylla á þessu sviði. Lesa meira
 
Nýtt skipurit Umhverfisstofnunar

7.11.2007 : Nýtt skipurit Umhverfisstofnunar

Umhverfisstofnun skiptist í tvö fagsvið og þrjú stoðsvið samkvæmt nýju skipuriti stofnunarinnar sem kynnt var í gær en tekur gildi um næstu áramót. Fagsviðin verða svið náttúru- og dýraverndar og svið hollustuverndar og mengunarvarna. Stoðsviðin þrjú verða svið lögfræði og stjórnsýslu, svið fjármála og reksturs og svið fræðslu og upplýsingamála. Lesa meira
 
Merki Albertslund

6.11.2007 : Albertslund fékk umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Bæjaryfirvöld í Albertslund í Danmörku unnu umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Bæjarfélagið fékk verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur í anda sjálfbærrar þróunar. Meðal annars hefur bæjaryfivöldum tekist að minnka losun koltvísýrings um 46% frá árinu 1986. Lesa meira
 

5.11.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á ársfundi Úrvinnslusjóðs 2007

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, flutti eftirfarandi ávarp á ársfundi Úrvinnslusjóðs sem haldinn var 5. nóvember 2007. Lesa meira
 

2.11.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á ráðstefnunni Náttúran og nærumhverfið

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, ávarpaði á ráðstefnunni Náttúran og nærumhverfið sem haldin var í Garðabæ 2. nóvember 2007. Í ávarpi sínu lýsti hún m.a. skoðun sinni að tímabært sé að lyfta náttúruverndinni - í umræðu og stefnumótun - bæði á sveitarstjórnarstiginu og á vettvangi ríkisvaldsins. Lesa meira
 
Frá ársfundi Náttúrufræðistofnunar 2007.

31.10.2007 : Hillir undir lausn á húsnæðisvanda Náttúrufræðistofnunar

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur ákveðið að ganga til samninga við Urriðaholt ehf. um byggingu nýs húsnæðis fyrir stofnunina í Urriðaholti í Garðabæ. Þetta kom fram í máli Jóns Gunnars Ottóssonar, forstjóra stofnunarinnar á ársfundi hennar fyrir skömmu. Lesa meira
 
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs

30.10.2007 : Annar fundur stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hélt annan fund sinn í síðustu viku og var hann haldinn að Skriðuklaustri. Til umfjöllunar voru m.a. drög að framkvæmda- og rekstraráætlunum þjóðgarðsins fyrir árið 2008 og einnig var rætt um væntanlega arkitektasamkeppni um hönnun fjögurra nýrra gestastofa innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Lesa meira
 

26.10.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á ársfundi Náttúrufræðistofnunar Íslands

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, flutti ávarp á ársfundi Náttúrufræðisofnunar Íslands 26. október 2007. Í ávarpi sínu sagðist ráðherra telja að framundan séu mörg sóknarfæri fyrir Náttúrufræðistofnun og möguleiki á að efla stofnunina og starf hennar og áhrif á stefnumótun stjórnvalda. Lesa meira
 

23.10.2007 : Ávarp Þórunnar Sveinbjarnardóttur á ráðstefnunni Landupplýsingar 2007

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, flutti ávarp á haustráðstefnu LÍSU samtakanna sem haldin var 17. október 2007. Lesa meira
 
Frá Umhverfisþingi 2007

22.10.2007 : Óskað eftir athugasemdum við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni

Almenningi, félagasamtökum og stofnunum gefst tækifæri til að senda inn athugasemdir við drög að stefnumörkun um líffræðilega fjölbreytni, sem kynnt voru á Umhverfisþingi 12.-13. október. Athugasemdir þurfa að berast fyrir 15. desember. Lesa meira
 

22.10.2007 : Upptökur af ræðum umhverfisráðherra og framkvæmdastjóra UNEP

Nú er hægt að horfa á upptökur af ræðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra og Achim Steiner, framkvæmdastjóra Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem þau fluttu við setningu Umhverfisþings. Fljótlega verða birtar upptökur af öðrum erindum sem flutt voru á þinginu. Lesa meira
 
Kolefnisjöfnun - hvað er það?

15.10.2007 : Kolefnisjöfnun - hvað er það?

Fjórða Stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmunar fróða um sjálfbæra þróun fer fram á morgun, þriðjudag og fjallar um kolefnisjöfnun. Á fundinum verður fjallað um hvað kolefnisjöfnun felur í sér, hvernig kolefnisbókhald er haldið, skyldur Íslands og möguleika til að mæta þeim. Stefnumótið hefst kl. 12:00 í fundarsal Þjóðminjasafnsins. Lesa meira
 
Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri og Achim Steiner, framkvæmdastjóri UNEP, á Umhverfisþingi.

13.10.2007 : Frétti af Nóbelsverðlaunum á Umhverfisþingi

Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP), var staddur á Umhverfisþingi í gær þegar hann frétti að Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna (IPCC) og Al Gore hefðu hlotið friðarverðlaun Nóbels. IPCC er samstarfsverkefni UNEP og Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar.

Lesa meira
 
Hluti hópsins með Max Gomera, aðstoðarmanni Achim Steiner, framkvæmdastjóra Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna.

12.10.2007 : Varðliðar umhverfisins á Umhverfisþingi

Krakkar úr bekk 63 úr Hólabrekkuskóla kynntu verkefni sitt um ruslpóst á Umhverfisþingi í morgun. Krakkarnir voru útnefndir Varðliðar umhverfisins af umhverfisráðherra á Degi umhverfisins 25. apríl eftir þátttöku í verkefnasamkeppni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur. Lesa meira
 
Áherslur umhverfisráðherra á kjörtímabilinu

12.10.2007 : Áherslur umhverfisráðherra á kjörtímabilinu

Gefið hefur verið út rit um áherslur Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra á kjörtímabilinu. Í inngangi ritar umhverfisráðherra að í ritinu birtist sýn hans á helstu verkefni í ráðuneyti umhverfismála á kjörtímabilinu 2007 til 2011. Lesa meira
 
Umhverfisráðuneytið

11.10.2007 : Umhverfisþingi varpað beint á netinu

Umhverfisráðuneytið vill vekja athygli staðardagskrárfulltrúa, sveitarstjórnarmanna og alls áhugafólks um umhverfismál á að fundum Umhverfisþings 2007 verður varpað beint á heimasíðu umhverfisráðuneytisins. Með því er komið til móts við þá sem vilja fylgjast með umræðunum en eiga ekki heimangengt. Einnig verður fjarstöddum boðið að senda þinginu athugasemdir og spurningar með tölvupósti.

Lesa meira
 
Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og nýkjörinn formaður Samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu

10.10.2007 : Forstjóri Landmælinga kjörinn forseti EuroGeographics

Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, verður forseti samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu næstu tvö árin. Ársþingi samtakanna, EuroGeographics, lauk í dag í Dubrovnik í Króatíu en Landmælingar Íslands og Fasteignamat ríkisins eiga aðild að þeim fyrir Íslands hönd. Lesa meira
 
Achim Steiner, framkvæmdastjóri UNEP.

8.10.2007 : Forstjóri UNEP er heiðursgestur umhverfisþings 2007

Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP), verður heiðursgestur Umhverfisþings 2007. Hann mun flytja ávarp við setningu þingsins klukkan 9:00 að morgni föstudagsins 12. október. UNEP

er leiðandi í alþjóðlegri stefnumótun á sviði umhverfismála og veitir ríkisstjórnum og Sameinuðu þjóðunum vísindalegar ráðleggingar um umhverfismál

.

Lesa meira
 
Einfaldara Ísland

5.10.2007 : Einföldunaráætlun umhverfisráðuneytisins

Eins og fram kom í stefnuræðu forsætisráðherra hafa öll ráðuneyti undanfarna mánuði farið yfir reglur sem þau starfa eftir og stjórnsýsluframkvæmd til að koma auga á leiðir til að auðvelda almenningi og fyrirtækjum samskipti við hið opinbera. Hafa ráðuneytin einsett sér að vinna markvisst að úrbótum á næstu tveimur árum. Lesa meira
 
Í Hellisheiðarvirkjun

4.10.2007 : Samkomulag um bindingu koltvísýrings sem steintegundar

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti ávarp í Hellisheiðarvirkjun um helgina við undirritun samkomulags um vísindaverkefni sem miðar að bindingu koltvísýrings sem steintegundar í iðrum jarðar. Að verkefninu standa Orkuveita Reykjavíkur, Háskóli Íslands, Columbia háskóli í Bandaríkjunum og Rannsóknarráð Frakklands. Ávarpið var flutt á ensku. Lesa meira
 

24.9.2007 : Drög að dagskrá Umhverfisþings

Nú liggja fyrir drög að dagskrá Umhverfisþings. Sérstök athygli er vakin á því að Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNEP, mun flytja ávarp við þingsetninguna.

Lesa meira
 
Dr. Jack D. Ives afhendir Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra bók um 1000 ára sögu Skaftafells.

19.9.2007 : Fertugsafmæli Skaftafellsþjóðgarðs

Haldið var upp á 40 ára afmæli Skaftafellsþjóðgarðs í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli. Við það tilefni kynnti dr. Jack D. Ives nýja bók um Skaftafell, sem fjallar um 1000 ára sögu staðarins. Bókin er bæði gefin út á íslensku og ensku. Þórunn Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra fékk bókina afhenta við þetta tilefni. Í Lesa meira
 

18.9.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á ráðstefnunni Driving Sustainability

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, flutti ávarp á ráðstefnunni Driving Sustainability sem haldin er í tilefni að samgönguviku 2007 sem nú stendur yfir. Ávarpið er flutt á ensku. Lesa meira
 

14.9.2007 : Mengunarvarnir og hollusta

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, flutti ávarp á málþingi sem haldið var á Hótel Loftleiðum í tilefni þess að nú eru 20 ár liðin frá því að Montrealbókunin um efni sem eyða ósonlaginu var undirrituð í Motreal í Kanada.

Lesa meira
 

12.9.2007 : Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar

Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun boða til málstofu föstudaginn 14. september í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar. Málþingið fer fram á Hótel Loftleiðum og stendur frá kl. 9:00 til 12:00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Lesa meira
 
Aðalsteinn Ingólfsson, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra.

10.9.2007 : Vistvæn hönnun til sýnis

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnaði um helgina sýningu Hönnunarsafns Íslands á vistvænni hönnun. Boðskapur sýningarinnar er sá að varla sé lengur hægt að ræða fagurfræði og nytsemi hönnunar án þess að taka tillit til þeirra áhrifa sem hún hefur á umhverfi sitt. Kappkostað var að velja til sýningarinnar vel hannaða og útbreidda nytjahluti, bæði úr fórum safnsins og frá erlendum framleiðendum. Lesa meira
 
grænland

27.8.2007 : Grænlensk nefnd kynnir sér íslensk lög um umhverfisvernd og skipulagsmál

Fulltrúar endurskoðunarnefndar grænlenska þingsins komu til fundar með starfsfólki umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar í húsakynnum umhverfisráðuneytisins í liðinni viku. Nefndin var meðal annars stödd hér á landi til að kynna sér orkumál og málefni tengd álverum. Lesa meira
 
Umhverfisráðherra með aðstoðarmanni og þingkonum.

22.8.2007 : Umhverfisráðherra og þingmenn skoðuðu Þjórsárver

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra slóst í liðinni viku í för með umhverfisnefnd og iðnaðarnefnd Alþingis í Þjórsárver. Í ferðinni var meðal annars gengið á Sóleyjarhöfða og farið í Þúfuver þar sem lífríkið var skoðað. Lesa meira
 
Umhverfisráðherra með nemendum úr Vinnuskóla Reykjavíkur og Kópavogs og evrópskum sjálfboðaliðum við landgræðslu.

24.7.2007 : Umhverfisráðherra tekur þátt í landgræðslu

Þórunn Sveinbjarnardóttir tók fyrir skömmu þátt í að planta trjám við Litlu kaffistofuna á vegum samtakanna Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs. Nemendur úr Vinnuskóla Reykjavíkur og Kópavogs og evrópskir sjálfboðaliðar tóku einnig til hendinni við þetta tilefni en þeir hafa unnið með samtökunum að landgræðslu í sumar. Lesa meira
 
Samráðsfundur umhverfisráðherra með fulltrúum frjálsra félagasamtaka.

9.7.2007 : Samráðsfundur umhverfisráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka

Samráðsfundur umhverfisráðuneytisins með frjálsum félagasamtökum var haldinn fyrir skömmu. Á fundinum gafst Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra tækifæri til að ræða við fulltrúa félagasamtaka á sviði umhverfismála og kynna fyrir þeim stefnu nýrrar ríkisstjórnar. Lesa meira
 
Heimsókn umhverfisráðherra í Samband íslenskra sveitarfélaga

4.7.2007 : Umhverfisráðherra heimsækir Samband íslenskra sveitarfélaga

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, heimsótti í dag Samband íslenskra sveitarfélaga. Lesa meira
 

21.6.2007 : Umhverfissamstarf Norrænu ráðherranefndarinnar auglýsir eftir starfsmanni

Umhverfissamstarf á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar auglýsir eftir starfsmanni í tímabundna stöðu. Starfið felst m.a. í því að samræma aðgerðaáætlanir Norðurlandaþjóðanna sem byggir á Norrænnu framkvæmdaráætluninni 2005-2008. Lesa meira
 

13.6.2007 : Aðgerða er þörf á Íslandi

Grein eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um þekkingu og aðgerðir á sviði loftslagsbreytinga birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar greinir hún m.a. frá því að brátt taki til starfa vísindanefnd á vegum umhverfisráðuneytisins sem verður falið að skoða afleiðingar loftslagsbreytinga hér á landi. Lesa meira
 
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra afhendir flaggar Grænfánanum með nemendum og starfsfólki Norðlingaskóla.

6.6.2007 : Norðlingaskóli flaggar Grænfána

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra afhenti nemendum og starfsfólki Norðlingaskóla Grænfánann í gær. Það var fyrsti Grænfáninn sem Þórunn afhendir síðan hún tók við starfi umhverfisráðherra. Skólar fá leyfi til að flagga Grænfánanum í tvö ár ef þeir uppfylla skilyrði er varða umhverfismennt og umhverfisstefnu. Lesa meira
 
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra

4.6.2007 : Umræður á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra tók þátt í umræðum á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra sem fram fóru 31. maí síðastliðinn. Þar ræddi hún meðal annars um náttúruvernd og loftslagsmál. Hér má lesa ræðuna í heild sinni. Lesa meira
 
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnar Gámavelli.

1.6.2007 : Umhverfisráðherra opnar Gámavelli

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnaði í gær Gámavelli Gámaþjónustunnar í Hafnarfirði. Við það tækifæri benti umhverfisráðherra á að Íslendingar ættu enn langt í land með að ná markmiðum sínum um aukna endurnýtingu og endurnotkun. Lesa meira
 
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnar nýjan vef Veðurstofu Íslands.

1.6.2007 : Umhverfisráðherra opnar nýjan vef Veðurstofu Íslands

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnaði í gær nýjan vef Veðurstofu Íslands, vedur.is. Nýi vefurinn tekur fyrst og fremst við mið af auknum kröfum um myndræna framsetningu upplýsinga. Á vefnum má finna mikið magn hagnýtra upplýsinga og fróðleiks sem ekki hefur verið aðgengilegur áður. Lesa meira
 
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra afhendir Ellý Katrínu Guðmundsdóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, konfekt körfu í fyrstu heimsókn sinni á Umhverfisstofnun sem umhverfisráðherra.

30.5.2007 : Umhverfisráðherra heimsækir stofnanir ráðuneytisins

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur í dag og í gær heimsótt stofnanir sem heyra undir ráðuneytið. Í gær heilsaði hún upp á starfsfólk Umhverfisstofnunar og sagðist við það tilefni vera full tilhlökkunar að takast á við þau mörgu verkefni sem biðu hennar. Lesa meira
 
Umhverfisráðherra við kurlvélina ásamt starfsfólki Fjölsmiðjunnar.

10.5.2007 : Umhverfisráðherra ræsti kurlvél Fjölsmiðjunnar

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ræsti í morgun kurlvél í húsakynnum Fjölsmiðjunnar. Umhverfisráðherra veitti 1.500.000 kr. styrk til kaupa á vélinni í nóvember á liðnu ári. Ætlunin er að auka enn þátttöku Fjölsmiðjunnar í endurnýtingu og með kaupum á vélinni skapast verkefni fyrir a.m.k. sex unglinga.

Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hjólar af stað keppninni ásamt fleirum.

3.5.2007 : Umhverfisráðherra hjólar af stað fyrirtækjakeppni

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra tók þátt í opnunarhátíð keppninnar ,,Hjólað í vinnuna" í gær. Það er Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem skipuleggur keppnina. Umhverfisráðherra sagði við þetta tækifæri að með þessu legði Íþrótta- og ólympíusambandið lóð á vogarskálar umhverfisverndar. Lesa meira
 

27.4.2007 : Ávarp Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, á ráðstefnu FENÚR um úrgangsstjórnun

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, ávarpaði gesti á ráðstefnu FENÚR sem haldin er í dag 27. apríl 2007 um úrgangsstjórnun til ársins 2020 og gerði þar grein fyrir afstöðu ríkisins til úrgangsstjórnunar. Lesa meira
 
Skref fyrir skref. Bæklingur um vistvernd í verki (pdf).

26.4.2007 : Skref fyrir skref

Umhverfisráðuneytið og Landvernd hafa gefið út fræðsluritið Skref fyrir skref. Ritinu er ætlað að vera leiðarvísir að því sem hvert og eitt okkar getur gert til að skapa vistvænni heim og heilsusamlegra umhverfi. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra skrifar í ritið að stjórnvöldum beri skylda til þess að fræða fólk um hvernig það getur breytt eigin háttum til vistvænni lífsstíls. Ritinu sé ætlað einmitt slíkt hlutverk, að leiðbeina fólki frá vilja til verks.

Lesa meira
 

25.4.2007 : Ávarp Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, á Degi umhverfisins 2007

Jónína Bjartmarz ávarpaði gesti á samkomu sem umhverfisráðuneytið stóð að á Kjarvalsstöðum í tilefni af Degi umhverfisins sem haldinn er hátíðlegur 25. apríl ár hvert. Lesa meira
 

19.4.2007 : Ávarp Jónínu Bjartmarz við opnun Gljúfrastofu

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ávarpaði gesti og opnaði formlega gestastofuna í þjóðgarðinum Jökulsárgljúfrum sem hlotið hefur nafnið Gljúfrastofa, á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2007. Lesa meira
 

10.4.2007 : Ávarp Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, á ráðstefnu um hnattlægar umhverfisrannsóknir og spálíkanagerð.

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, ávarpaði gesti á ráðstefnu í Háskóla Íslands 10. apríl 2007 þar sem fjallað var um hnattlægar umhverfisrannsóknir og spálíkanagerð. Ávarpið er á ensku. Lesa meira
 
stefnumotolia

10.4.2007 : Möguleg umhverfisáhrif af olíuleit innan íslensku landhelginnar

Á þriðja Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, föstudaginn 13. apríl 2007, verður fjallað um möguleg áhrif olíuleitar innan íslensku landhelginnar á umhverfið. Stefnumótið fer fram í stofu 201 í Árnagarði og hefst kl. 12:15. Lesa meira
 

30.3.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á málþingi um vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, ávarpaði gesti við upphaf málþings sem haldið er í dag á Hótel Loftleiðum og fjallar um vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu og ástand og horfur þessara mála. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra á tali við Tetsuya Chikushi

27.3.2007 : Umhverfisráðherra í viðtali við japanskan fréttaþátt

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra var í viðtali við Tetsuya Chikushi, fréttamann japanska fréttaþáttinn News 23, í dag. Viðtalið kemur til með að verða sýnt í stuttum innslögum um Ísland sem sýndir verða í þáttunum. Umfjöllunarefnið verður hrein orka, hvað Íslendingar eru að gera til minnka notkun jarðefnaeldsneytis auk virkjana- og álversmála. Um 10 milljónir Japana horfa daglega á þáttinn.

Lesa meira
 
Umhverfisráðuneytið

26.3.2007 : Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir sérfræðingi til starfa

Laus er til umsóknar staða sérfræðings á skrifstofu sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála. Meðal verkefna skrifstofunnar eru starf á sviði loftslagsmála og umhverfisverndar í hafinu auk söfnunar og framsetningu tölulegra vísa um umhverfismál.

Lesa meira
 

23.3.2007 : Auglýst eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn 2006

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2006. Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 4. apríl.

Lesa meira
 

22.3.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á ráðstefnu slökkviliðsstjóra 2007

Jónína Bjartmaz umhverfisráðherra flutti ávarp á árlegri ráðstefnu slökkviliðsstjóra sem haldin var á Ránni í Keflavík í dag. Lesa meira
 
Merki Kvískerjasjóðs

15.3.2007 : Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2007. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknarstyrkja til einstaklinga og stofnana. Umsóknarfrestur er til 13. apríl. Lesa meira
 
Við Setrið

14.3.2007 : Umhverfisráðherra á ferð um hálendið

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra fór í hálendisferð með félagsmönnum í Ferðaklúbbnum 4x4 um liðna helgi en að undanförnu hafa farið fram viðræður milli umhverfisráðherra og ýmissa félaga og samtaka vegna réttaróvissu varðandi utanvegaakstur. Lesa meira
 

12.3.2007 : Fræðslufundaröð Sesseljuhúss og Landverndar

Sesseljuhús og Landvernd hafa sett saman fræðslufundaröð um umhverfismál. Boðið verður upp á sex fundi en fyrsti fundurinn fer fram miðvikudaginn 14. mars. Umhverfisráðuneytið er helsti styrktaraðili Sesseljuhúss. Lesa meira
 

1.3.2007 : Ávarp Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra á ráðstefnu VFÍ og TFÍ

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ávarpaði gesti á ráðstefnu Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands sem haldin var 1. mars 2007 undir yfirskriftinni Er nýting fallvatna og jarðhita í sátt við umhverfi sitt. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra.

1.3.2007 : Ávarp umhverfisráðherra á ráðstefnu Evrópuþingsins

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra flutti ávarp á ráðstefnu Evrópuþingsins um Norðlægu víddina í Brussel í gær. Í máli hennar kom m.a. fram að Heimskautaár Sameinuðu þjóðanna sem hefst í dag muni efla rannsókna- og vísindastarf á heimskautasvæðunum. Þá lagði hún áherslu á mikilvægi virks samstarf þjóða við Norður-Atlantshaf vegna aukinna skipaflutninga á þessu svæði með gas og olíu. Hér má lesa erindið í heild sinni á ensku. Lesa meira
 
Stefnumót - Er hægt að leysa loftslagsvandann?

28.2.2007 : Er hægt að leysa loftslagsvandann?

Á öðru Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, föstudaginn 2.mars 2007, verða loftslagsbreytingar til umræðu undir fundarheitinu Er hægt að leysa loftslagsvandann? Stefnumótið fer fram í stofu 201 í Árnagarði og hefst kl. 12:15. Lesa meira
 

20.2.2007 : Varðliðar umhverfisins

Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur boða til verkefnasamkeppni grunnskólabarna undir heitinu Varðliðar umhverfisins. Keppnin er ætluð ungu fólki í 5. til 10. bekk og hún á að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Skilafrestur verkefna er 20. mars. Lesa meira
 
JoninaBj0104

14.2.2007 : Loftslagið er á ábyrgð okkar allra

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra skrifaði grein í Morgunblaðið á laugardag um loftslagsmál. Þar undirstrikaði hún að hlýnun andrúmsloftsins sé hnattrænt vandamál sem kalli á sameiginlegt átak ríkja heims. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra

8.2.2007 : Hvernig ökum við í átt að vistvænni framtíð

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ávarpaði í dag gesti á ráðstefnu Metan hf., Sorpu bs. og Olíufélagsins ehf. sem haldin var í tilefni af 10 ára afmæli gassöfnunar í Álfsnesi undir yfirskriftinni Hvernig ökum við í átt að vistvænni framtíð. Lesa meira
 

6.2.2007 : Veðurstofan veitir upplýsingar um loftslagsskýrslu

Veðurstofa Íslands hefur á heimasíðu sinni birt íslenska þýðingu á fréttatilkynningu frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) vegna ástandsskýrslu Milliríkjanefdarinnar um loftslagsbreytingar sem birt var á föstudag. Lesa meira
 

5.2.2007 : Ársfundur stjórnarnefndar Umhverfisstofnunar Sþ

Dagana 5.-9. febrúar fer fram fundur í stjórnarnefnd Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP). Auk hefðbundinna starfa varðandi starfsáætlun og fjárlög stofnunarinnar næstu tvö árin verður á fundinum sérstaklega rætt um hnattvæðingu og umhverfismál og hvernig efla má starf Sameinuðu þjóðanna að umhverfismálum á komandi árum. Lesa meira
 

31.1.2007 : Samstarf umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða

Umhverfisráðuneytið og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands hafa ákveðið að efna saman til Stefnumóta, þar sem brýn umhverfismál verða tekin fyrir á opnum fundum. Á fyrsta Stefnumóti, föstudaginn 2.febrúar 2007, verður svifryk til umræðu undir fundarheitinu Hvað svífur yfir Esjunni? Lesa meira
 

26.1.2007 : Ávarp umhverfisráðherra um skipulagsmál á Hornströndum

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra flutti ávarp á ráðstefnu um skipulagsmál á Hornströndum sem haldin var á Ísafirði í dag. Þar fjallaði hún m.a. um stöðu friðlandsins á Hornströndum og friðun sjófuglabyggða. Lesa meira
 
F.v. Árni Kristinsson, fulltrúi BSI á Íslandi, Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra, Magnús Jónsson veðurstofustjóri og Gunnar Guðmundsson frá 7.is.

25.1.2007 : Veðurstofa Íslands fær alþjóðlega gæðavottun

Veðurstofa Íslands fékk í dag formlega afhent viðurkenningarskjal frá Bresku gæðavottunarstofnuninni um að flugveður­þjónusta stofnunarinnar uppfylli kröfur alþjóðlega gæðastaðalsins ISO-9001. Í ávarpi sem Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra flutti við þetta tækifæri sagði hún m.a. að Ísland hefði veigamiklu hlutverki að gegna varðandi öryggismál fyrir alþjóðlega flugumferð á Norður-Atlantshafi. Lesa meira
 
Umhverfisráðherra á ferðakaupstefnunni.

18.1.2007 : Umhverfisráðherra heimsótti stærstu ferðakaupstefnu Norðurlanda

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra heimsótti finnsku ferðakaupstefnuna Helsinki Travel Fair í Helsinki í dag ásamt Hannesi Heimissyni sendiherra. Á annan tug íslenskra fyrirtækja voru með kynningu á sýningunni og lögðu áherslu á ævintýraferðir. Ráðherra hitti einnig fulltrúa frá erlendum ferðaskrifstofum sem eiga viðskipti við Ísland og leggja sum hver sérstaka áherslu á umhverfisvæna ferðaþjónustu. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráherra ásamt Stefan Wallin, umhverfis- og samstarfsráðherra Finnlands og Cristinu Husmark Pehrsson, samstarfsráðherra Svíþjóðar.

17.1.2007 : Umhverfisráðherra fjallar um samstarf í umhverfismálum

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda er nú stödd í Hanasaari í Finnlandi á ráðstefnu um Norðlægu víddina og norrænt samstarf. Þar flutti hún ávarp þar sem hún fjallaði m.a. um mikilvægi alþjóðlegs samstarfs á sviði loftslagsmála, fiskveiðistjórnunar og um öryggi siglingaleiða við strendur Íslands, Noregs og Grænlands í kjölfar aukinna olíu- og gasflutninga. Ræðan var flutt á ensku. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra við strandstað Wilson Muuga

2.1.2007 : Vel að verki staðið við Hvalsnes

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra skrifaði grein í Fréttablaðið á gamlársdag um vel heppnaðar bráðaaðgerðir til að forða mengunarslysi við strandstað flutningaskipsins Wilson Muuga á Reykjanesi. Lesa meira
 

Efst á baugi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica