Beint í leiðarkerfi vefsins.
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra fór í dagsferð um Þjórsárver í gær og átti auk þess
fund með sveitarstjórnarmönnum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem afstaða þeirra til frekari friðlýsingar á svæðinu var rædd.
Lesa meira
Umhverfisráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík gerðu nýlega með sér starfsnámssamning og munu nemendur lagadeildar skólans í kjölfarið stunda starfsnám í ráðuneytinu. Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur við lagadeild HR, undirrituðu samninginn.
Lesa meira
Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra þar sem hún fjallar um loftslagsbreytingar og vekur athygli á alþjóðlegri ráðstefnu sem íslensk stjórnvöld efna til 11. og 12. september. Þar verður fjallað um áhrif loftslagsbreytinga á hafstrauma og vistkerfi í Norður Atlantshafi.
Hreint og klárt, vefrit umhverfisráðuneytisins, kom út í dag. Meðal fjölbreytts efnis er frásögn af nýju leiðbeinandi vegakorti fyrir ökumenn á miðhálendinu sem er liður í átaki umhverfisráðuneytisins gegn utanvegaakstri.
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra flutti ávarp á ársfundi Umhverfisstofnunar sem haldinn er á Hótel Loftleiðum í dag.
Lesa meira
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra flutti í dag ávarp á fundi Samtaka ferðþjónustunnar, sem haldinn var undir yfirskriftinni Auðlindin Ísland. Í ávarpinu fjallaði ráðherra um samspil nýtingar og náttúruverndar.
Umhverfisráðherra lagði sérstaka áherslu á nýtingu jarðhita og skýrði m.a. frá aukinni áherslu Íslands á jarðhitanýtingu í þróunarlöndum og minnti á starfsemi Jarðhitaskóla S.þ. á Íslandi. Ávarpið er á ensku.