Beint í leiðarkerfi vefsins.
Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert og í ár verður hann tileinkaður skógum. Efnt verður til ýmissa viðburða af þessu tilefni. Meðal annars mun umhverfisráðherra afhenda Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti og Kuðunginn. Þá verður efnt til skógargöngu í Borgarbyggð, Reykjavík og Kópavogi.
Lesa meiraDagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert, en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Árið 2011 er ár skóga samkvæmt ákvörðun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og því hefur umhverfisráðuneytið ákveðið að dagur umhverfisins verði að þessu sinni tileinkaður skógum.
Lesa meiraMeta verður velferð einstaklinga og þjóðfélaga með fleiri mælikvörðum en efnahagslegum að mati norrænu umhverfisráðherranna sem hittust á fundi í Brussel í gær. Ráðherrarnir ræddu einnig grænt hagkerfi og umfangsmikið norrænt samstarf á sviði umhverfismála.
Lesa meira
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verður afhent í annað sinn á degi umhverfisins 25. apríl næstkomandi. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningarinnar.
Lesa meira