Forsíða

Norrænir umhverfisráðherrar vilja efla umhverfisvæna tækni

Norðurlöndin hyggjast efla samvinnu um að styðja þróun og nýtingu umhverfisvænnar tækni. Umhverfisráðherrar Norðurlanda samþykktu þetta á fundi sínum í Ilulissat á Grænlandi 15. ágúst. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Áhersla verður m.a. lögð á tækni sem miðar að því að draga úr mengun frá skipum, auka orkunýtni í byggingum og minnka neikvæð umhverfisáhrif landbúnaðar. Einnig verður reynt að þróa efnahagslega hvata til að efla umhverfisvæna tækni.

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tók á fundinum upp málefni kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield og lýsti yfir áhyggjum Íslendinga vegna óhapps þar fyrr á þessu ári, þegar tugir þúsunda lítra af geislavirkum vökva láku úr leiðslu án þess að þess yrði vart mánuðum saman. Umhverfisráðherra sendi breskum stjórnvöldum bréf af þessu tilefni og kynnti efni bréfsins á fundinum, auk svars Breta, þar sem segir að rannsókn á óhappinu standi enn yfir. Norrænu ráðherrarnir tóku undir sjónarmið Íslands og lýstu áhyggjum yfir stöðu öryggismála í Sellafield og munu taka málið aftur fyrir þegar niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir, ásamt tillögum um úrbætur.

Málefni hafsins voru til umræðu, ekki síst vegna mikils þörungablóma sem rekja má til mengunar í Eystrasalti í sumar. Svíar ætla að boða til sérstaks fundar umhverfisráðherra ríkjanna við Eystrasalt í næsta mánuði til að ræða umhverfisvandamál í hafinu.

Umhverfisráðherrarnir ræddu samhengi umhverfisverndar og baráttunnar gegn fátækt í heiminum. Þeir voru sammála um að verndun umhverfis og skynsamleg nýting auðlinda væri mikilvægt umræðuefni á fundi þjóðarleiðtoga í New York í september, þar sem farið verður yfir árangurinn við að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægt innlegg í því samhengi er Þúsaldarskýrsla um ástand vistkerfa jarðar (Millenium Ecosystem Assessment), sem kom út fyrr á þessu ári. Ein helsta niðurstaða hennar var að álag á vistkerfi jarðar færi vaxandi og að bæta þyrfti umgengni mannkyns um þau ef þau eiga að geta staðið undir vaxandi neyslu og velferð þjóða heims.

Fréttatilkynning nr. 24/2005

Umhverfisráðuneytið




Þetta vefsvæði byggir á Eplica