Umhverfisráðherra felur brunamálastjóra að gera úttekt vegna brunans hjá Hringrás ehf.
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur, vegna brunans á athafnasvæði Hringrásar ehf. hinn 22. nóvember og með vísan til ákvæða laga nr. 75/2000 um brunavarnir, falið brunamálastjóra að gangast fyrir eftirfarandi athugun.
a) gera úttekt á brunavörnum og eldvarnareftirliti hjá aðilum með sambærilegan eða hliðstæðan rekstur og Hringrás ehf.,
b) kanna í ljósi atvika hvort ástæða sé til að breyta lögum eða reglum um brunavarnir og eldvarnaeftirlit til þess að draga úr líkum á því að atvik sem þetta endurtaki sig og
c) skoða sérstaklega hvort ástæða sé til þess að fyrirskrifa nánari samvinnu við eftirlitsaðila til þess að tryggja skilvirkni í framkvæmd laga og reglna um brunavarnir.
Brunamálastjóri skal við þessa athugun hafa samráð við viðkomandi yfirvöld og eftirlitsaðila. Þess er óskað að niðurstöður úttektarinnar skv. a-lið liggi fyrir eigi síðar en 16. janúar 2005. Sé talin ástæða til breytinga á lögum og reglum eða framkvæmd þeirra berist tillögur þess efnis eigi síðar en 15. febrúar 2005.
Umhverfisráðuneytið
Fréttatilkynning nr. 43/2004
