Fjölbreytt dagskrá á Degi íslenskrar náttúru 16. september
Allt landið
- 9:45 Aukaaðalfundur í Leynifélaginu. Skólabörn sperri eyrun. RÚV, rás 1.
- Í tilefni dagsins opna Landmælingar Íslands formlega nýja örnefnasjá. Í sjánni er hægt að leita eftir örnefnum og skoða þau ofaná loftmyndir í góðri upplausn. Örnefnasjána er að finna hér.
- Landgræðslan gefur öllum framhaldsskólum og háskólum landsins bókina Sáðmenn sandanna - saga landgræðslu á Íslandi 1907-2007.
- Ungmennafélag Íslands efnir til herferðar með útvarpsstöðinni Bylgjunni þar sem brýnt verður fyrir landsmönnum að ganga vel um landið.
Vesturland
- 16:00 Hvanneyri Landbúnaðarháskóli Íslands býður til gönguferðar þar sem fuglaverndunarsvæðið í Andakíl verður kynnt með áherslu á lífshætti blesglæsarinnar, en umhverfisráðuneytið undirbýr nú tilnefningu svæðisins á lista Ramsarsamningsins. Leiðsögumenn verða Anna Guðrún Þórhallsdóttir og Björn Þorsteinsson prófessorar við Landbúnaðarháskólann en mæting er á kirkjuhlaðinu kl. 16.
- 13.15 Bifröst Skógarferð með skógarverði Vesturlands, Birgi Haukssyni, sem vísar veginn um þjóðskóginn í Jafnaskarði við Hreðavatn. Mæting er á háskólatorginu á Bifröst kl. 13:15 þar sem sameinast verður í bíla og ekið inn í skóg.
- Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull Þjóðgarðsvörður mun heimsækja leiksskóla á Hellissandi og í Ólafsvík og mun vera með barnastundir. Runólfur refur mun mæta í skólana með henni.
Norðausturland
- 12.00 – 13.00 Akureyri Umhverfisstofnun stendur fyrir fyrirlestrum um líffræðilega fjölbreytni, CITES og veiðistjórnun í Borgum á Akureyri.
- 12:30 Siglufjörður 1. og 2. bekkur á Siglufirði sýna myndir á torginu, í hjarta bæjarins. Myndirnar unnu þau í samfélags- og náttúrufræði og flytja Dalvísu eftir náttúrufræðinginn og skáldið Jónas Hallgrímsson
- 18:00 Norðurland eystra Landgræðslan býður í göngu- og kynnisferð um uppgræðslusvæðið á Hólasandi norðan Mývatns. Mæting er við útsýnispallinn.
-
Verndarsvæði Mývatns og Laxár fræðsla á vegum Umhverfisstofnunar um náttúru svæðisins. Farið verður í grunnskólana á svæðinu og nemendur þar fræddir um líffræðilega fjölbreytni, hvaða máli hún skiptir og smálífverur í ferskvatni skoðaðar í smásjá.
-
Norðurland Eystra - Þistilfjörður Vegna smalamennsku verður sameiginleg gönguferð Svalbarðsskóla og Svalbarðshrepps um náttúruperluna Rauðanes farin 20. september en efnt er til gönguferðarinnar í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Með í för verður leiðsögumaður auk náttúru- eða jarðfræðings.
- Fjallabyggð Í tilefni af ljóðahátíðinni Glóð sem stendur yfir á Siglufirði 15. -17. september og Degi íslenskrar náttúru, mun Þórarinn Hannesson heimsækja yngri deildir Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði og Ólafsfirði og lesa eigin ljóð sem tengjast leikjum barna í íslenskri náttúru.
Austurland
- 16:15 og 17:00 Austurland Fjölskylduganga á Grænafell í boði Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands og í samstarfi við Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað og Náttúrustofu Austurlands. Mæting Reyðarfjarðarmegin er á Grænafellsvelli kl 17:00. Héraðsmegin er val um að leggja af stað frá sæluhúsinu á Fagradal kl 16:15 eða slást í hópinn við bílastæðið við Fagradalsá kl 17:00. Leiðsögumenn eru Þóroddur Helgason, Guðrún Sóley Guðmundsdóttir og Skaphéðinn Þórisson sérfræðingur á Náttúrustofu Austurlands.
Suðurland
- 13:00 – 16:00 Vestmannaeyjar, Surtseyjarstofa. Gestastofan verður opin og aðgangur ókeypis.
Starfsmaður Umhverfisstofnunar mun fara í grunnskólann í Vestmannaeyjum og segja frá verndarsvæðinu og sýna myndir. - 18:00 Þingvellir Landvernd býður til göngu um þjóðgarðinn í leiðsögn Sigrúnar Helgadóttur náttúrufræðings, sem mun vísa á forna hellisskúta og ræða um náttúru og sögu svæðisins. Mæting er við Gjábakka kl. 18 og er áætlað að gangan taki um tvær klukkustundir. Allir eru velkomnir.
-
Suðurland Landgræðslan býður nemendum og kennurum Grunnskólans á Hellu og Hvolsskóla í fræðslu- og birkifræsöfnunarferð í Gunnlaugsskóg í Gunnarsholti.
Suðurnes
- 9:00 Grindavík Grunnskólabörn í Grunnskóla Grindavíkur afhjúpa útilistaverk sem þau hafa unnið úr ýmis konar efnivið úr náttúrunni og umhverfinu.
Höfuðborgarsvæðið
-
09:00 – 13:00: Reykjavík Náttúru-ratleikur í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal. Leikur fyrir 4. bekk grunnskóla. Tekið verður á móti bekkjum frá kl. 9:00 - 13:00. Takmarkaður fjöldi hópa. Kennarar þurfa að áætla klukkustundarviðveru fyrir bekkinn sinn á meðan á leiknum stendur.
- 9:00 Kópavogur Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir tekur þátt í útikennslustund í Kársnesskóla.
-
9:00 – 16:00 Reykjavík Hjólum til framtíðar. Ráðstefna í Iðnó á vegum Hjólafærni á Íslandi og Landssamtaka hjólreiðamanna um framtíð samgönguhjólreiða á Íslandi. Ráðstefnan stendur til klukkan 16:00 og markar upphaf Samgönguviku.
- 9:30 Hafnarfjörður Hreinsunarátak Hraunavina í hrauninu sunnan og vestan við Straumsvík hefst en átakið er unnið í samvinnu við sjálfboðaliða SEEDS, grunnskóla, fyrirtæki og stofnanir. Átakið heldur áfram á laugardag og er þá mæting kl. 10 eða 13 í Straum við Straumsvík þar sem skipt verður í hópa og eru þátttakendur hvattir til að koma með poka með sér.
- 11:00 Garðabær Hátíðarsamkoma umhverfisráðherra í Búrfellshrauni. Afhending fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytisins
- 12:00 – 13:00 Reykjavík Náttúra og nýtni/ Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar býður gestum á Café Flóru og gangandi í Grasagarði Reykjavíkur upp á heilsudrykk og skemmtileg örerindi um strandlengjuna, eldgos, sandstorma, rétt náttúrunnar, jóga og hagnýtar upplýsingar um hvernig nýta megi það sem til fellur í garðinum.
- 12:15 Garðabær Hádegisganga um Búrfellshraun í nágrenni Náttúrufræðistofnunar Íslands undir leiðsögn Ásrúnar Elmarsdóttur plöntuvistfræðings og Sigmundar Einarssonar jarðfræðings. Mæting við hús Náttúrufræðistofnunar. Áætlað er að gangan taki um 45 mínútur.
- 13.00 – 17.00 Esjuhlíðar. Gestum og gangandi gefst kostur á að taka þátt í sjálfboðaliðastörfum í náttúruvernd, nánar tiltekið við viðhald göngustíga á gönguleiðinni upp Esjuna. Verkefnið er á vegum Umhverfisstofnunar og unnið í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
- 13:30 – 16:30 Bláfjallavegur Erlendir sendiherrar á Íslandi vinna að endurbótum á gönguleið að Leiðarenda og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra leggur hönd á plóg.
- 14:00 Reykjavík Stofnun Líf- og umhverfisvísindastofnunar Háskóla Íslands í Öskju.
- 14:00 og 14:30 Reykjavík Heimsókn í vaktherbergi Veðurstofunnar, Bústaðavegi 9 (með fyrirvara um atburð í náttúrunni).
- 15:00 Reykjavík Málþing Líf- og umhverfisvísindastofnunar um gildi íslenskrar náttúru. Askja, stofa 132.
- 15:00 Reykjavík Vatnsbúskapur á Íslandi. Erindi. Snorri Zóphóníasson jarðfræðingur, Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 9.
- 17:15 Reykjavík Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru býður Lótus jógasetur, Borgartúni 20, upp á frían tíma í dans og yoga.
- Kópavogur Þann 15. september stendur umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs fyrir fjölskyldugöngu um trjásafnið og Yndisgarðinn í Kópavogi í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. Lagt verður af stað frá austurenda Kjarrhólma kl. 17:00.
- Reykjavík Ljósmyndasýning Fuglaverndar, Fuglablik, er opin frá 8:00 til 19:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur, 16. september sem og aðra daga fram til 25. september.
