Alþjóðlegir umhverfissamningar - Dýr í millilandaflutningum
Evrópusamningur um vernd dýra í millilandaflutningum
Heiti:
- Evrópusamningur um vernd dýra í millilandaflutningum.
- European Convention for the Protection of Animals during International
Transport.
Eðli samnings og vörsluaðili:
- Svæðisbundinn samningur
- Í vörslu Evrópuráðsins
- 23 aðildarríki og gildir fyrir aðila Evrópuráðsins.
Dags.:
- Gerður í París 13. desember 1968.
- Öðlaðist gildi 20. febrúar 1971.
Aðild Íslands:
- Undirritaður 13. des. 1968, fullgiltur 1. maí 1969, öðlaðist gildi 20. febrúar 1971,
C 8/1969, 28/1992.
Bókanir:
- Gerð í Strassborg 10. maí 1979; öðlaðist gildi 7. nóvember 1989.
Aðild Íslands: Undirrituð 24. apríl 1986, öðlaðist gildi 7. nóv. 1989, Stjt. C 8/1986 og
C 36/1991.
Breytingar:
- Engar.
Stjórn:
- Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðsins fer með eftirlit með framkvæmd samningsins.
Stefnumörkun: Umhverfisráðuneytið í samráði við landbúnaðarráðuneytið
Framkvæmd: Umhverfisstofnun og Yfirdýralæknir
Þátttaka í fundum: Umhverfisstofnun og Yfirsýralæknir
Upplýsingagjöf: Umhverfisstofnun og Yfirdýralæknir
Markmið:
- Að tryggja, eins og mögulegt er, að dýr þjáist ekki þegar þau eru flutt á milli landa. Samningurinn hefur að geyma reglur, sem aðildarríkjum ber að fylgja um ástand dýra fyrir flutning og meðferð þeirra á meðan á flutningi stendur.
Ákvæði:
- Samningurinn hefur að geyma reglur um ástand dýra fyrir flutninga og meðferð þeirra á
meðan á flutningi stendur.
- Dýrum er skipt í fimm flokka og gilda mismunandi reglur um hvern flokk.
- Hæf yfirvöld, eitt eða fleiri, í hverju samningsríki skulu hafa eftirlit með framkvæmd
samningsins. Tilkynna skal um heiti þeirra og heimilisfang til aðalframkvæmdastjóra
Evrópuráðsins.
Upplýsingar:
Council of Europe
F-67075 Strasbourg Cedex
Tel: +33 3 88 41 20 00
Fax: +33 3 88 41 2751/3747
