Alþjóðlegir umhverfissamningar - Aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun
Samningur um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun
Heiti: Samingur Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun í löndum,
sérstaklega í Afríku, sem eiga við alvarlegan vanda að etja af völdum þurrka og/eða
eyðumerkurmyndunar. (United Nations Convention to Combat Desertification in those Countries
Experiencing Serious Drought and/or Desertification, Particularly in Africa). (CCD)
Markmið: Að vinna gegn eyðimerkurmyndun og draga úr skaðlegum afleiðingum þurrka í löndum
sem eiga við alvarlegan vanda að etja af völdum þurrka og/eða eyðimerkurmyndunar.
Eðli samnings og vörsluaðili: Alþjóðlegur samningur í vörslu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 175 aðildarríki júní 2001.
Dagsetning: Gerður í París 17. júní 1994 og öðlaðist gildi 26. desember 1996.
Texti samnings: (PDF skjal - 269 KB)
Aðild Íslands: 3. júní 1997, öðlaðist gildi 1. september 1997; Stj.tíð. C16/1997.
Bókanir: Engar.
Breytingar: Engar.
Stjórn: Ákvarðanir eru teknar á aðildarríkjaþingi sem haldin eru árlega.
Stefnumörkun: Umhverfisráðuneytið í samráði við utanríkis- og
landbúnaðarráðuneyti
Framkvæmd: Landgræðsla ríkisins og Þróunarsamvinnustofnun
Þátttaka í fundum: Umhverfisráðuneytið og landbúnaðarráðuneytið
Upplýsingagjöf: Umhverfisráðuneytið (skýrslur um framkvæmd samningsins).
Ákvæði: Samningurinn hefur að geyma fimm svæðisbundna viðauka.
Viðauki I: Svæðisbundnar framkvæmdir í Afríku.
Viðauki II: Svæðisbundnar framkvæmdir í Asíu.
Viðauki III: Svæðisbundnar framkvæmdir í rómönsku Ameríku og á Karíbasvæðinu.
Viðauki IV: Svæðisbundnar framkvæmdir við norðanvert Miðjarðarhaf.
Viðauki V: Svæðisbundnar framkvæmdir í mið- og austur Evrópu.
Heimasíða: Secretariat of the Convention to Combat Desertification.